Það var sárt að sjá eftir bikarnum í gær til Chelsea. Leikurinn var bragðdaufur en það er alveg klárt að við áttum að fá víti í byrjun framlengingar en lélegur dómari leiksins sá ekkert athugavert. Svakalega finnst mér Höddi Magg vera slakur í þessum lýsingum á Sýn. Hann er svo mikill Liverpool maður að það væri martröð fyrir hann að sjá Man Utd lyfta bikarnum. Eins og allir vita sem eru harðir stuðningsmenn Liverpool og Man Utd þá er ekki gaman að sjá fjendurna lyfta bikar. Þegar ég horfði á þennan leik þá fannst mér Wembley lang stærsti völlur í heimi. Menn voru bara búnir eftir fyrri hálfleik (ég er að tala um stærð vallarins ekki leikvangsins) en svona er þetta við getum ekki unnið allt, við unnum stærsta bikarinn í ár og getum verið sáttir við tímabilið.
Í dag verður mikið um að vera, fyrst fer Brynjólfur á fótboltaæfingu, þar á eftir í fimleika og síðan endar þetta allt saman í afmæli hjá Melkorku frænku Brynjólfs og Regínu Sögu.
Leið mín er á fótbolta æfingu með BMÓ, þetta er hans önnur æfing og var hann á sinni fyrstu æfingu eins og kóngur. Hann er búin að hlakka til í viku til að fara á æfingu í nýju fótboltaskónum sínum. Regína Saga fær að fara með en við verðum bara að sparka á milli fyrir utan völlinn. Hún hefur einnig alveg svakalega gaman af fótbolta en er of ung til að byrja æfa.
Bið að heilsa í bili
Óli Bryn
Bloggar | 20.5.2007 | 09:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jæja það gerðist eins og ég spáði, Framsókn út og Samfylking inn. Sjálfstæðismenn búnir að draga Framsókn á asna eyrunum á meðan þeir voru að tala við Samfylkingu og athuga hvort þeir gætu ekki unnið með þeim. Þegar ljóst var að þeir gætu starfað saman þá spörkuðu þeir Framsókn út. það voru bara tveir kostir fyrir Sjálfstæðisflokk, annars vegar að halda áfram með Framsókn eða vera með Samfylkingu.
Við fórum í sveitina í dag og skemmtum okkur alveg ágætlega þar sem börnin sáu lamb fæðast, þau voru mjög ánægð og spennt að fá að vera í sveitinni og Brynjólfur gat fengið að vera í bóndastígvelunum sínum. Ólafía náði að klára nokkur verkefni sem þurfti að skila í skólanum og var það frábært að geta notað daginn í það.
Mourinho er byrjaður sálfræði stríðið fyrir úrslitaleik bikarsins þar sem hann bað Ronaldo (besta fótboltamann dagsins í dag) að hætta þessum leikaraskap. Ég skil ekki þennan sálfræðihernað hjá honum því þessi ummæli eru örugglega eftir að gera menn vitlausa á móti honum og menn spila bara betur gegn honum. Þetta kveikir bara í mönnum.
jæja ég bið að heilsa
Óli Bryn
Bloggar | 17.5.2007 | 20:52 (breytt kl. 20:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sæl og blessuð
Nú er ég byrjaður að blogga. Hér verða skoðanir mínar, fréttir af fjölskyldu og vinum hafðar að leiðarljósi.
Ég ætla skreppa austur í Fljótshlíðina á morgun til Hólmfríðar systur þar sem hún er að hjálpa kindunum að bera. Gaman verður fyrir Binna og Sögu að sjá þetta í beinni útsendingu. Ólafía ætlar væntanlega að nota tíman til að læra á meðan.
Annars kemur í ljós í dag að Framsókn fari í Stjórnarandstöðu á meðan Samfylkingin fer í stjórn með Sjálfstæðisflokki. Ég er eiginlega alveg handviss um það.
Gott í bili
Bloggar | 16.5.2007 | 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

